17.04.1962
Efri deild: 96. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2367 í B-deild Alþingistíðinda. (1970)

139. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hf. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Með því að frv. Þetta hafði tekið nokkrum breyt. í hv. Nd., taldi fjhn. þessarar d. rétt að skjóta á stuttum fundi til að athuga þessar breyt. og afstöðu til þeirra. Þessi fundur hefur verið haldinn, en breyt. reyndust yfirleitt svo smávægilegar, að þær munu engu breyta um afstöðu n. í heild eða einstakra nm. til frv. Fjhn. leggur ekki fram neinar sérstakar brtt.