11.12.1961
Neðri deild: 35. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í B-deild Alþingistíðinda. (202)

9. mál, alþjóðasamþykkt um varnir gegn óhreinkun sjávarins

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Hæstv. forseti. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 177, tók sjútvn. fyrir frv. um heimild fyrir ríkisstj. til að staðfesta fyrir Íslands hönd alþjóðasamþykkt um að fyrirbyggja óhreinkun sjávar af völdum olíu og setja reglur um frekari varnir gegn slíkri óhreinkun sjávar. Nefndin mælir einróma með því, að frv. nái fram að ganga, og leggur til, að því verði vísað til 3. umr.