10.11.1961
Neðri deild: 16. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2696 í B-deild Alþingistíðinda. (2401)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Þórarinn Þórarinsson:

Hæstv. forseti. Það hefur komið fram í blaðaskrifum undanfarið, að varnarliðið á Keflavíkurflugvelli hafi óskað eftir því, að fá verulega stækkun á sjónvarpsstöðinni, sem það rekur þar, og í stjórnarblöðunum hefur það komið fram undanfarna daga, að þetta leyfi hafi verið veitt. Nú vil ég gera þá fyrirspurn til hæstv. ríkisstj., hvort það sé rétt, að Það sé búið að veita þetta leyfi, og um hversu mikla stækkun sé hér að ræða.