26.03.1962
Neðri deild: 74. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2742 í B-deild Alþingistíðinda. (2461)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (RH):

Mér hefur í dag borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 24. marz 1962.

Þar sem ég mun ekki geta sinnt þingstörfum næstu vikur vegna annríkis, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að fyrsti varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Davíð Ólafsson fiskimálastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Pétur Sigurðsson.

Til forseta neðri deildar“.

Kjörbréf varamannsins hefur þegar verið athugað, og tekur hann því sæti í deildinni, og leyfi ég mér að bjóða hann velkominn.