16.12.1961
Efri deild: 36. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2749 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)
Þingsetning
Karl Kristjánsson:
Ég veit, að ég mæli það, sem þið hv. þdm. viljið allir taka undir, þegar ég þakka hæstv, forseta fyrir hans vinsamlegu orð og hlýju hátíðaróskir og heimfararóskir í okkar garð. Jafnframt vil ég tjá honum Þakkir fyrir hans prúðmannlegu forsetastörf og óska honum góðrar heimferðar og heimkomu og árna honum og hans vandamönnum gleðilegra jóla og farsæls nýárs. Hittumst svo öll heil að þinghléi loknu. Ég bið ykkur, hv. þdm., að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þdm. risu úr sætum.]