19.12.1961
Neðri deild: 39. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2750 í B-deild Alþingistíðinda. (2501)

Þingsetning

Lúðvík Jósefsson:

Hæstv. forseti. Ég vil fyrir hönd þdm. þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir og hlý orð í garð okkar þdm. Ég vil jafnframt þakka hæstv. forseta fyrir gott samstarf við okkur þdm. og góða og réttláta fundarstjórn. Ég vil jafnframt óska forseta og fjölskyldu forseta gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og bið hv. þdm. að taka undir óskir mínar til hæstv. forseta með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]