01.02.1962
Sameinað þing: 32. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2752 í B-deild Alþingistíðinda. (2509)

Þingsetning

Forseti (FS):

Samkvæmt forsetabréfi því, sem hæstv. forsrh. hefur nú kunngert, hefjast fundir Alþingis að nýju. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir hans í minn garð og annarra hv. þingmanna. Jafnframt býð ég hann sérstaklega velkominn, er hann tekur nú sæti á Alþingi eftir nokkra fjarveru. Hv. alþingismenn býð ég velkomna til Alþingis og óska þeim velfarnaðar á hinu nýja ári, sömuleiðis starfsfólki Alþingis, um leið og ég þakka gott samstarf og góð kynni á liðnum árum.