17.04.1962
Neðri deild: 98. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 2753 í B-deild Alþingistíðinda. (2514)

Starfslok deilda

forseti (RH):

Þá er dagskrá þessa fundar tæmd, en þar sem ég geri ráð fyrir, að þessi fundur muni verða hinn seinasti á þessu þingi, vil ég leyfa mér að þakka hv. þdm., skrifstofustjóra og starfsliði Alþingis ánægjulega viðkynningu og gott samstarf á þessu þingi. Þessum sömu aðilum og þeirra fjölskyldum leyfi ég mér að óska gleðilegrar páskahátíðar og allra heilla á því sumri, sem nú fer í hönd, þeim, sem nú hverfa til síns heima um langan veg, vil ég sérstaklega óska fararheilla og góðrar heimkomu og ítreka þakkir mínar til þeirra og annarra þdm. fyrir samstarfið á liðnum vetri.