11.12.1961
Efri deild: 31. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (256)

106. mál, lántaka hjá Alþjóðabankanum

Fram. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft til meðferðar frv. það, sem hér liggur fyrir, og eins og nál. á þskj. 201 ber með sér, hefur n. orðið sammála um að mæla með því, að frv. verði samþykkt óbreytt. Að öðru leyti hafði hæstv. fjmrh. gert ýtarlega grein fyrir því við 1. umr. málsins, hvaða ástæður liggja til þess, að frv. Þetta er flutt af hæstv. ríkisstj., og sé ég ekki ástæðu til þess að bæta neinu við það.