07.04.1962
Neðri deild: 86. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (2573)

171. mál, almannavarnir

Hannibal Valdimarsson:

Hæstv. forseti. Alþb. hafði borið fram till. til rökstuddrar dagskrár um að vísa málinu frá og fresta afgreiðslu þess til næsta þings, en sú rökstudda dagskrá hefur nú verið felld. Við þm. Alþb. erum því að sjálfsögðu samþykkir, að afgreiðslu þessa máls sé frestað til næsta þings, eins og felst í þessari rökstuddu dagskrá, en hins vegar erum við andvígir forsendum hennar og munum því sitja hjá við atkvgr.