04.12.1961
Neðri deild: 29. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í C-deild Alþingistíðinda. (2842)
62. mál, sala eyðijarðarinnar Lækjarbæjar
Flm. (Einar Ingimundarsson):
Hæstv. forseti. Ég flyt á þskj. 79 ásamt hv. 2. og 5. þm.. Norðurl. v. frv. til laga um heimild fyrir ríkisstj. til að selja eyðijörðina Lækjabæ í Fremri-Torfustaðahreppi. Ég tel ekki þörf á að fara mörgum orðum um efni þessa frv., en eins og í grg. segir, þá er hér um eyðijörð að ræða, sem hefur verið í eyði um áratugaskeið. Hús á jörðinni eru engin og túnið, sem var lítið, mun vera komið í órækt, og telja kunnugir menn, að engin líkindi séu til þess, að býli þetta verði endurreist, enda er hér um heiðarland að ræða. Hins vegar hefur Sigurgeir Jónatansson bóndi á Skeggjastöðum í FremriTorfustaðahreppi, þar sem jörðin er, farið þess á leit og óskað þess eindregið, að hann fái þessa jörð keypta, og hefur meðmæli hreppsnefndar Fremri-Torfustaðahrepps til þess. En Sigurgeir bóndi á Skeggjastöðum hefur haft afnot þessarar jarðar um skeið og séð um hana fyrir jarðareiganda. Mér er kunnugt um, að hreppsnefnd Ytri-Torfustaðahrepps hefur skrifað landbn. þessarar hv. d. og óskað eftir því, að þeim hreppi, þar sem jörðin liggur ekki, verði áskilinn forkaupsréttur að henni. Ég tel auðvitað sjálfsagt, að þetta erindi verði athugað í n. nákvæmlega, en ég hef þó ástæðu til að ætla, að hreppsnefnd Fremri-Torfustaðahrepps, þar sem jörðin er, muni ekki falla frá forkaupsrétti á jörðinni, ef um annan kaupanda verður að ræða en Sigurgeir Jónatansson bónda á Skeggjastöðum, eins og frv. þetta gerir ráð fyrir.
Ég legg svo til, að þessu frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. landbn.