09.04.1962
Efri deild: 82. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 508 í C-deild Alþingistíðinda. (2944)
90. mál, Tunnuverksmiðjur ríkisins
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Þetta frv. um Tunnuverksmiðjur ríkisins felur það í sér, að byggð verði ein tunnuverksmiðja til viðbótar við það, sem núgildandi lög um Tunnuverksmiðjur ríkisins heimila. Það er sérstaklega haft í huga, að sú tunnuverksmiðja, sem hér um ræðir, verði byggð hér á Suðvesturlandi, og er Akranes tilnefnt í því sambandi. Með hliðsjón af því er í 2. gr. frv. kveðið á um, að ábyrgðarheimild ríkissjóðs verði 8 millj. í staðinn fyrir 5 millj., eins og í núgildandi lögum er.
Hins og kunnugt er, hafa um allmörg undanfarin ár verið starfræktar tvær tunnuverksmiðjur hér á landi, og eru þær báðar norðanlands, önnur á Akureyri og hin er á Siglufirði. Þessar tunnuverksmiðjur hafa framleitt að meðaltali á undanförnum 5 árum um 130 þús. tunnur. En það er langt frá því, að það fullnægi þeirri þörf, sem aðeins er fyrir hendi á Norður- og Austurlandi. Hins vegar er, eins og fram kemur í grg. með frv., á síðari árum um allmikla síldarsöltun að ræða hér suðvestanlands, og hefur heildarmagnið svo að segja ekkert árið á s.l. 10 árum komizt niður fyrir það, sem Tunnuverksmiðjur ríkisins hafa í hvorri tunnuverksmiðjunni um sig framleitt norðanlands.
Auk þess sem hér hefur verið framleidd, eins og ég segi, í vaxandi mæli á Suðvesturlandi saltsíld á undanförnum árum, þá er hér um að ræða aðra framleiðslu, sem notar tómar tunnur, og það er hrognaframleiðslan. Bæði er það, að sykursöltuð hrogn eru flutt út á hverju ári og enn fremur grófsöltuð hrogn. Það munu vera um 30 þús. tunnur, sem þarf til þeirra nota á hverju ári, eða sem næst helmingur af því magni, sem hvor tunnuverksmiðjan um sig framleiðir nú árlega á Siglufirði eða Akureyri. Það er því auðsætt, að hér er um brýna þörf að ræða fyrir eina slíka verksmiðju á Suðvesturlandi.
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta mál, en vísa til þess, sem ég sagði í framsögu um málið, og til nál., sem er á þskj. 645, þar sem sjútvn. deildarinnar leggur einróma til, að frv. verði samþ.