27.10.1961
Sameinað þing: 10. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í D-deild Alþingistíðinda. (2974)

48. mál, mótmæli gegn risasprengju Sovétríkjanna

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Svo sem fram hefur komið í umr. og marglýst hefur verið yfir, eru engin kjarnorkuvopn geymd á Íslandi og ekki komið til greina, að þau yrðu hér. Af þeirri ástæðu er flutningur þessarar tillögu ástæðulaus. Hins vegar yrði samþykkt hennar nú skilin þannig, sem hún væri gerð undir áhrifum hótunar þeirrar, sem felst í helsprengjunni, og kemur það ekki til greina af minni hálfu, að Alþingi geri samþykkt, sem þannig yrði skilin.