15.12.1961
Sameinað þing: 25. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í D-deild Alþingistíðinda. (2997)

117. mál, frestun á fundum Alþingis

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Á það hefur verið lögð áherzla við ríkisprentsmiðjuna að hraða svo prentun fjárlagafrv., að útbýta mætti því á morgun. Fyrirætlanir um 3. umr. fjárlaga á mánudag byggjast á því. Ef svo færi á móti von, að ekki yrði hægt að útbýta frv. fyrr en á mánudag, tel ég óhjákvæmilegt að fresta 3. umr. til þriðjudags.