21.03.1962
Sameinað þing: 44. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í D-deild Alþingistíðinda. (3045)

83. mál, gufuveita frá Krýsuvík

Sveinn S. Einarsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar flm. þessarar þáltill. þakka hv. fjvn. og frsm. hennar fyrir þann einhuga stuðning, sem nefndin hefur sýnt þessu máli, og ég vil leyfa mér að vænta þess, að svipaða afstöðu muni hið háa Alþingi taka um þetta.