07.03.1962
Sameinað þing: 40. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í D-deild Alþingistíðinda. (3255)

91. mál, afturköllun sjónvarpsleyfis

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Þar sem ég vil leysa sjónvarpsmálið samkvæmt þáltill. á þskj. 161, sem ég er einn af flm. að og er hér á dagskránni á þessum fundi, og í trausti þess, að þessi þáltill. komi til fullnaðarafgreiðslu á þessu þingi, þá segi ég nei við þessari.