18.10.1961
Sameinað þing: 4. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (333)

1. mál, fjárlög 1962

Forseti (FS):

Þingsköp mæla svo fyrir, að almennar stjórnmálaumræður, eldhúsumræður, fari fram við framhald 1. umr. fjárlaga. Sú regla hefur hins vegar myndazt um allmörg undanfarin ár og um hana verið samkomulag milli þingflokka, að þessum almennu stjórnmálaumræðum hefur verið frestað þar til síðar á þingtímanum. Ráðgert er, að þessari reglu verði enn haldið, og verður nú leitað afbrigða frá þingsköpum, til þess að svo megi verða.