21.02.1962
Sameinað þing: 37. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í D-deild Alþingistíðinda. (3704)

302. mál, ráðstöfun 6 milljón dollara lánsins

Utanrrh. (Guðmundur Í. Guðmundason):

Herra forseti. Í tilefni af því, að hv. fyrirspyrjandi hefur haldið því fram, að ég hafi á sínum tíma lýst því yfir, að láni því, sem tekið var í Bandaríkjunum samkv. heimild í 22. gr. fjárlaga frá 1959, yrði ekki ráðstafað, án þess að leita fyrir því samþykkis áður, þá kemur mér þessi fullyrðing hv. þm. mjög undarlega fyrir sjónir. Ég minnist þessa alls ekki og vil gjarnan athuga það mál nánar. Ég held, að hv. þingmaður hljóti að blanda hér eitthvað málum.