18.12.1961
Sameinað þing: 29. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 479 í B-deild Alþingistíðinda. (371)

1. mál, fjárlög 1962

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Hv. 6. þm. Sunnl. (KGuðj) spurði, hvort fyrirhuguð væri lækkun aðflutningsgjalda af bifreiðum og hækkun innflutningsgjalds af benzíni. Því er til að svara, að hvorugt hefur verið rætt í ríkisstjórninni.