19.12.1961
Sameinað þing: 31. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í B-deild Alþingistíðinda. (395)

1. mál, fjárlög 1962

Einar Ingimundarson:

Herra forseti. Með því að þessi brtt. er borin fram undirbúningslaust og án nokkurs samráðs við þrjá þm. úr viðkomandi kjördæmi, hlýt ég að líta svo á, að hún sé fyrst og fremst borin fram í öðru skyni en að fá hana samþykkta, og segi því nei.