07.02.1962
Sameinað þing: 33. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 527 í B-deild Alþingistíðinda. (419)

114. mál, fjáraukalög 1960

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Frv. til fjáraukalaga fyrir árið 1960 er flutt og samið samkv. tillögum yfirskoðunarmanna ríkisreikninga, og hefur fjvn. yfirfarið það og borið saman við tölur í ríkisreikningi fyrir árið 1960 og ekkert fundið athugavert. Leggur n. til, að frv. verði samþykkt.