16.11.1961
Efri deild: 17. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (46)

74. mál, lækkun aðflutningsgjalda

Forseti (EggÞ):

Ég vil aðeins í sambandi við þessi kurteislegu orð þm. nú síðast taka það fram, að hann hlýtur að hafa verið hér viðstaddur, þegar afbrigði voru veitt fyrir því, að þetta mál væri tekið til 3. umr., með 15 shlj. atkv. Málið er til 3. umr. Það er hins vegar enn þá á valdi þingmanna, hvað lengi sú umræða stendur. Hinn hluti ræðu hans vitnar sjálfur um sig. Það er óþarfi fyrir mig að taka nokkuð frekar fram í því efni.