14.12.1961
Efri deild: 33. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 548 í B-deild Alþingistíðinda. (470)

95. mál, erfðalög

Ásgeir Bjarnason:

Ég get fyrir mitt leyti vel fallizt á þá till. hæstv. ráðh., að nefndin taki þau atriði, sem ég minntist á hér áðan, til athugunar fyrir 3. umr. og að þær skýringar, sem ég fór fram á um þetta frv., komi alveg eins við þá umr. og þessa, ef það hentar hæstv. ráðh. betur. Ég geri engan greinarmun á því. En ég vænti þess bara, að þessi atriði verði tekin til meðferðar og lagfærð, eftir því sem nefndinni og öðrum aðilum hér í hv. deild sýnist bezt henta.