13.02.1962
Neðri deild: 48. fundur, 82. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í B-deild Alþingistíðinda. (554)

129. mál, framsal sakamanna

Frsm. (Alfreð Gíslason bæjarstjóri):

Hæstv. forseti. Ég tel ekki ástæðu til, að mörg orð séu höfð um þetta frv., enda var því fylgt úr hlaði með ræðu hæstv. dómsmrh., og hef ég þar engu við að bæta. Að athugun allshn. lokinni var hún ágreiningslaust sammála um að leggja til, að frv. þetta verði samþykkt óbreytt.