17.04.1963
Efri deild: 74. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1026)
205. mál, Kennaraskóli Íslands
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Menntmn. hefur athugað þetta frv. í meðförum hv. Nd. Alþ. tók það nokkrum breyt. Menntmn. þessarar hv. d. leggur til, að frv. verði samþ., en einstakir nm. áskilja sér þó rétt að flytja við frv. brtt. eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma. En einn nm., hv. 5. þm. Reykn., var fjarverandi, þegar málið var afgr. úr n. Þegar frv. var hér til 1. umr., fylgdi hæstv. menntmrh. því úr hlaði með ræðu, og sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða að þessu sinni frekar um efni frv.