26.11.1962
Neðri deild: 21. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

98. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., er staðfesting á samkomulagi, sem varð til lausnar hinni svokölluðu læknadeilu. Það mál var á sínum tíma rætt, að vísu utan dagskrár í Sþ., en þar sem meginatriði þess eru hv. alþm. kunn, sé ég ekki ástæðu til að rekja þau nú. Ég vil einungis geta þess, að þetta frv. hefur þegar hlotið afgreiðslu Ed. og var þar samþ. ágreiningslaust. Vonast ég til þess, að svo fari einnig hér í þessari hv. deild.

Ég leyfi mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og fjhn.