09.04.1963
Neðri deild: 68. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (1098)

213. mál, meðferð einkamála í héraði

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Þetta frv. er þess efnis að breyta nokkrum ákvæðum einkamálalaganna, sem ekki eiga lengur við sökum breyttrar löggjafar að öðru leyti, en einkanlega vegna breytts verðgildis peninga. Það hefur verið athugað í Ed., og varð þar ekki neitt ágreiningsefni. Ég vænti þess, að það fái einnig greiðan framgang hér í deildinni.

Ég leyfi mér að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.