17.04.1963
Neðri deild: 72. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (1100)

213. mál, meðferð einkamála í héraði

Frsm. (Einar Ingimundarson):

Herra forseti. Allshn. hefur kynnt sér frv. til 1. um breyt. á 1. nr. 85 23. júní 1936, um meðferð einkamála í héraði, og leggur n. einróma til, að frv. verði samþ. með þeirri smávægilegu leiðréttingu, sem frá er greint í nál. á þskj. 643.

Frv. þetta er flutt í Ed., og gekk það ágreiningslaust gegnum þá d. Í því felast eðlilegar og nauðsynlegar breyt. á gildandi lögum um meðferð einkamála í héraði, og er nánar gerð grein fyrir breyt. í aths. með frv.