18.04.1963
Efri deild: 77. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1314 í B-deild Alþingistíðinda. (1234)
246. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Forseti (SÓÓ):
Ég vil taka eftirfarandi fram í sambandi við ummæli hv. 1. þm. Norðurl. e. um það, hvort hér væri um sama atriði að ræða og brtt. hans við tollskrána, sem fram kom á sínum tíma og var felld, — hvort hér væri um sama atriði að ræða, sem ekki mætti samkvæmt þingsköpum bera upp aftur í þessari deild á þessu þingi. Þingsköp segja um þetta, í 32. gr.: „Brtt. um atriði, sem búið er að fella í d., má eigi bera upp aftur í sömu deild á sama þingi.“ Þarna er átt við brtt. „En heimilt er að bera hana upp í hinni d. og sameinuðu þingi, ef tækifæri er til þess.“ Þarna er um tvö ólík atriði að ræða. Umrædd brtt., sem var felld, var um breyt. á lögum um tollskrá. Frv. það, sem hér er til umræðu, er um breyt. á allt öðrum lögum og á því ekki að því leyti skylt við hina felldu brtt., og kemur því flutningur þess ekki i bága við þingsköp.