18.04.1963
Neðri deild: 79. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1323 í B-deild Alþingistíðinda. (1272)

242. mál, fasteignamat

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á, að mér finnst allt stefna að því, að afgreiðsla þessa máls verði með nokkuð óvenjulegum hætti. Það er talað um, að það sé nú til 3. umr. Það hefur engin atkvgr. um málið farið fram við 2. umr. Samkv. þingsköpum á þá að bera upp einstakar greinar frv. Þetta hefur enn ekki verið gert. Mér sýnist, að þetta geti ekki verið lögleg meðferð á málinu. Ég vil skjóta því til hæstv. forseta.