05.04.1963
Efri deild: 68. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1538 í B-deild Alþingistíðinda. (1721)
232. mál, heimild til að veita Rafni Kolssyni skipstjóraskírteini
Frsm. (Jón Árnason):
Herra forseti. Frv. þetta um heimild handa siglingamálaráðh. til að veita Rafni Kolssyni skipstjóraskírteini á íslenzkum skipum er flutt af sjútvn. Ed. eftir beiðni samgmrn. Í grg. fyrir frv. segir svo m.a., með leyfi forseta:
„Rafn Kolsson (áður Reydar Kolsöe) er fæddur í Noregi 28. sept. 1902. Hann öðlaðist íslenzkan ríkisborgararétt með l. nr. 43 1955. Hann lauk skipstjóraprófi við sjómannaskólann í Fredrikstad í Noregi 1937 og hefur öðlazt norskt skírteini til skipstjórnar á skipum af ótakmarkaðri stærð og siglt árum saman, bæði sem stýrimaður og skipstjóri, á ýmsum skipum allt að 18 þús. rúmlestum að stærð, og hefur ham fært sönnur á, að hann fullnægi skilyrðum laga um siglingatíma til að öðlast skipstjóraréttindi þau, er hér um ræðir.“
Skólastjóri stýrimannaskólans í Reykjavík hefur kynnt sér skjöl þau, er fylgja frv. þessu, og önnur skjöl málið varðandi, og telur hann, að skipstjórapróf frá sjómannaskólanum í Fredrikstad jafnist fyllilega á við farmannapróf frá stýrimannaskólanum í Reykjavík og sé eðlilegt að veita Rafni réttindi, enda leggi hann fram vottorð samkv. e-lið 14. gr. l. nr. 66 1946, og hefur því skilyrði þegar verið fullnægt.
Þá er það bréf, fskj. I. sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Ég undirritaður, Rafn Kolsson skipstjóri, Goðheimum 4 í Reykjavík, leyfi mér hér með að sækja til hins háa ráðuneytis um réttindi til skipsstjórnar hér á landi, bæði í utan- og innanlandssiglingum, sbr. 14. gr. l. nr. 66 1946. Ég lauk skipstjóraprófi við sjómannaskólann í Fredrikstad í Noregi árið 1937 og sigldi síðan sem stýrimaður og skipstjóri á ýmsum skipum allt að 18 þús. lestum, og þ. á m. á olíuflutningaskipum Bandaríkjamanna. Í ófriðnum glataðist hið fyrra skipstjóraskírteini mitt, er skipi mínu var sökkt, og fékk ég því nýtt skírteini árið 1949. Í stríðslokin var ég skipstjóri fyrir ameríska sjóherinn, sem hafði bækístöð í Hvalfirði, og sigldi ég sem skipstjóri með 15 þús. tonna olíuskip, sem var í förum milli Rússlands og Íslands, auk þess sem ég annaðist olíuflutninga til herskipa á hafi úti, en umboðsmaður þess skips á þeim tíma var Eimskipafélag Íslands h/f. Ég öðlaðist íslenzkan ríkisborgararétt með l. nr. 43 frá 1955, en þá láðist mér að sækja jafnframt um skipsstjórnarréttindi á Íslandi. Umsókn þessari fylgir vottorð dómsmrn, um ríkisborgararétt minn, svo og prófskírteini mitt og skipstjóraskírteini.“
Þá er í öðru lagi bréf frá skólastjóra stýrimannaskólans hér, þar sem hann telur, eins og ég áður hef sagt, að eðlilegt sé að veita Rafni Kolssyni umbeðin réttindi. Sjútvn., sem hefur haft mál þetta til athugunar, mælir með því, að frv. verði samþykkt.