17.10.1962
Sameinað þing: 3. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1969 í B-deild Alþingistíðinda. (1888)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

forseti (FS):

Frá forseta Nd. hefur borizt svofellt bréf:

„Reykjavík, 15. okt. 1962.

Ragnhildur Helgadóttir, 8. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjavík, Davíð Ólafsson fiskimálastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Jóhann Hafstein,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Samkvæmt þessu tekur Davíð Ólafsson nú sæti á Alþingi. Um kjörbréf hans hefur áður verið fjallað og það samþykkt. Hann er mættur til þings, og býð ég hann velkominn.