05.11.1962
Neðri deild: 11. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1970 í B-deild Alþingistíðinda. (1890)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

forseti (JóhH):

Forseta hefur borizt eftirfarandi bréf:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur, leyfi ég mér hér með, með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis, að fara þess á leit, að 1. varamaður Alþfl. í Vesturlandskjördæmi, Pétur Pétursson forstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Benedikt Gröndal,

5. þm. Vesturl.

Til forseta neðri deildar.“

Kjörbréf Péturs Péturssonar hefur áður verið rannsakað, og býð ég hann velkominn til starfa.