08.04.1963
Neðri deild: 67. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1976 í B-deild Alþingistíðinda. (1907)

Varamenn taka þingsæti- rannsókn kjörbréfa

forseti (JóhH):

Eftirfarandi bréf hefur forseta borizt:

„Reykjavík, 6. apríl 1963.

Vegna anna heima fyrir mun ég ekki geta sinnt þingstörfum nú um skeið. Óska ég því þess, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Norðurl. v., Jón Pálmason bóndi, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.

Gunnar Gíslason.

Til forseta Nd.

Samkv. þessu tekur Jón Pálmason nú sæti á Alþingi, og býð ég hann velkominn til þingstarfa.