18.12.1962
Efri deild: 34. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (1942)

Þingsetning

Karl Kristjánsson:

Ég veit, að ég mæli það eitt, sem býr öllum hv. samdeildarmönnum mínum í hug, þegar ég leyfi mér að þakka hæstv. forseta fyrir hans hlýlegu orð og góðu árnaðaróskir í okkar garð. Ég vil um leið þakka honum sem forseta fyrir góða framkomu og lipurlega stjórn á fundum d. Og ég vil óska honum og fjölskyldu hans allra heilla á næstu jólum og hamingjuríks komandi árs. Ég bið ykkur, þdm., að gera svo vel að taka undir þessi orð mín með því að rísa úr sætum. [Dm. risu úr sætum.]