20.12.1962
Sameinað þing: 25. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (1947)

Þingsetning

forseti (FS):

Fleiri mál eru ekki á dagskránni, en hæstv. forsrh. mun brátt birta forsetabréf um frestun funda Alþingis. Verður þessi fundur væntanlega hinn síðasti fyrir jól, og skilja nú leiðir um sinn. Ég óska öllum hv. þm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýja árinu, og ég þakka þeim samveruna og góða samvinnu á árinu, sem er senn á enda. Utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimferðar og heimkomu, og ég óska þess, að við megum öll hittast hér heil, þegar þing verður kvatt saman á ný. Skrifstofustjóra og öðru starfsfólki þingsins óska ég einnig gleðilegra jóla og farsæls nýárs og þakka því vel unnin störf.