29.01.1963
Sameinað þing: 26. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1984 í B-deild Alþingistíðinda. (1951)

Þingsetning

forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. „Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkv. till. forsrh., að Alþingi, 83. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfundar þriðjudaginn 29. jan. 1963, kl. 13.30.

Gert að Bessastöðum, 18. jan. 1963.

Ásgeir Ásgeirsson.

Ólafur Thors.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfundar.“

samkv. þessu hefjast nú framhaldsfundir Alþingis. Ég leyfi mér að óska hæstv. forsetum og hv. alþm. og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og þakka þeim fyrir liðna árið, um leið og ég býð þá velkomna til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von, að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.