20.04.1963
Sameinað þing: 53. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1994 í B-deild Alþingistíðinda. (1971)

Þinglausnir

Eysteinn Jónsson:

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir góðar óskir hans í garð þm. Enn fremur vil ég sérstaklega nú í lok kjörtímabilsins, — og ég veit ég mæli þar fyrir munn okkar allra, — þakka hæstv. forseta fyrir sérlega réttláta og góða stjórn Sþ. Ég óska hæstv. forseta allra heilla og bið menn gera svo vel að taka undir þá ósk með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]