03.12.1962
Neðri deild: 24. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í C-deild Alþingistíðinda. (2008)

9. mál, efnahagsmál

Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þetta mál er ekki nýtt af nálinni, en er í öllum meginatriðum samhljóða frv., sem flutt var á síðasta þingi af hv. framsóknarmönnum og snertir meginágreininginn í efnahagsmálapólitík núv. ríkisstj. og stjórnarandstöðu. Meiri hl. fjhn. á síðasta þingi lagði til, að þetta mál yrði fellt, og afstaða okkar er sú sama. Ég sé ekki ástæðu til að hefja rökræður um þetta að svo stöddu, en ítreka það, að meiri hl. leggur til, að málið verði fellt.