17.12.1962
Neðri deild: 29. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 292 í B-deild Alþingistíðinda. (213)

46. mál, ríkisreikningurinn 1961

Frsm. meiri hl. (Birgir Kjaran):

Herra forseti. Fjhn. hv. deildar hefur haft til meðferðar frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1961. Nefndin hefur yfirfarið frv. og borið saman tölur þess við ríkisreikninginn og ekkert fundið athugavert. Meiri hl. n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt, en minni hl. mun skila séráliti.