25.03.1963
Neðri deild: 59. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í C-deild Alþingistíðinda. (2155)

192. mál, lækningaleyfi

Frsm. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft frv. þetta til athugunar og leggur einróma til, að það verði samþ. Það, sem hér um ræðir, er að gera víðtækari heimildina um sektarákvæði í lögum nr. 47 frá 23. júní 1932 um dagsektir. Með tilliti til þeirra verðbreytinga, sem orðið hafa í landinu síðan, leggur n. einróma til, að þessi breyt., sem hér er farið fram á, verði samþykkt.