22.10.1962
Efri deild: 6. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í C-deild Alþingistíðinda. (2181)

17. mál, ættaróðal og erfðaábúð

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. þetta og hin frv., sem eru síðar á dagskránni, fylgja öll frv. um þinglýsingar, eins og ég gat um áðan, og afgreiðsla þeirra hlýtur að verða háð afgreiðslu aðalfrv., þannig að nauðsynlegt er að samþ. þau, ef það verður samþ., ef ekki, þá verða þau að lúta sömu meðferð. Ég sé enga ástæðu til þess að tala sérstaklega fyrir hverju einstöku frv. Ég tel sjálfsagt, úr því að aðalfrv. er farið til 2. umr. og hv. allshn., að þau hljóti öll sömu meðferð af deildarinnar hálfu.