22.10.1962
Neðri deild: 6. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í C-deild Alþingistíðinda. (2270)

31. mál, Siglufjarðarvegur ytri

Einar Ingimundarson:

Herra forseti. Út af flutningi þessa frv. vil ég aðeins taka fram, að það er ekki vegna áhugaleysis okkar hv. 2. þm. Norðurl. v., að við erum ekki meðflm. að þessu frv., sem hér er lagt fram, — það stafar ekki af áhugaleysi okkar fyrir þeirri vegarlagningu, sem í frv. er ráðgerð, og fjáröflun til hennar, en hins vegar vorum við í fyrra, þegar sams konar frv. var lagt fram, meðflm. að því. Það stafar hins vegar af því, að við treystum hæstv. ríkisstj. til þess að finna lausn á því mikla hagsmunamáli, sem þessi vegarlagning er Siglufirði og öllum nágrannabyggðarlögum hans.