31.01.1963
Efri deild: 35. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í C-deild Alþingistíðinda. (2547)

115. mál, söluskattur

Forseti (SÓÓ):

Vegna ummæla hv. 5. þm. Norðurl. e., að óhæfilegur dráttur hafi verið á fyrirtöku þessa máls, vil ég geta þess, að frv. var útbýtt 6. des., það er tekið á dagskrá 17. des., og þá var það tekið út. Ég hygg, að það hafi verið vegna veikindaforfalla hv. flm. Ég held, að þetta sé ekki nein óvanaleg meðferð á málinu.