17.12.1962
Efri deild: 30. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í B-deild Alþingistíðinda. (255)

63. mál, skemmtanaskattsviðauki 1963

Frsm. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Frv. þetta um heimild til að innheimta skemmtanaskatt með viðauka á árinu 1963 er að efni til samhljóða frv., sem flutt hafa verið um árabil, en sú venja hefur skapazt, að Alþingi hafi samþ. slíka heimild til eins árs í senn. Menntmn. hefur haft frv. til athugunar og leggur einróma til, að það verði samþykkt.