20.02.1963
Sameinað þing: 31. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í D-deild Alþingistíðinda. (3064)

129. mál, lagning Vesturlandsvegar

Flm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Á þskj. 234 hef ég leyft mér að flytja svofellda till. til þál.:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta nú þegar ákveða vegarstæði Vesturlandsvegar frá Elliðaám og inn fyrir Kollafjörð og vinna þau undirbúningsstörf 'tinnur, sem nauðsynleg eru, til þess að endurbygging vegarins geti hafizt á næsta sumri.“

Um rökstuðning fyrir till. þessari vísa ég til grg. ag sé enga ástæðu til að bæta þar neinu við.

Ég legg svo til, herra forseti, að umr. um þetta mál verði frestað og því vísað til hv. fjvn.