13.03.1963
Sameinað þing: 38. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í D-deild Alþingistíðinda. (3361)
251. mál, dragnótaveiðar í fiskveiðilandhelgi
Fyrirspyrjandi (Jón Skaftason):
Herra forseti. Með l. nr. 40 9. júní 1980 var samþ. að heimila takmörkuð leyfi til dragnótaveiði í fiskveiðilandhelgi Íslands undir vísindalegu eftirliti. Mál þetta hafði um nokkra áratugi verið mikið deilumál innan þings og utan, og menn skiptust í fylkingar eftir því, hvort þeir vildu leyfa þessar veiðar að einhverju leyti eða banna þær með öllu.
Tilgangur okkar fyrirspyrjenda með þeirri fyrirspurn, sem ég mæli nú fyrir, er ekki sá að vekja upp þessar gömlu deilur um málið, enda ber orðalag fyrirspurnarinnar þess glöggt vitni. Hitt er heldur, að okkur fyrirspyrjendum og vafalaust mörgum öðrum leikur forvitni á að vita, hvaða áhrif dragnótaveiði í fiskveiðilandhelgi í Faxaflóa hefur haft á fiskistofna þar. Vil ég í því sambandi vekja athygli hv. þm, á frv., er hv. 4. þm. Vesturl., Jón Árnason, flytur í Ed., um bann við dragnótaveiði í Faxaflóa.
Í 5. gr. l. nr. 40 frá 1980, um takmarkað leyfi til dragnótaveiði í landhelgi, er gert ráð fyrir því, að fiskideild atvinnudeildar háskólans skuli fylgjast stöðugt með dragnótaveiðum í landhelgi og gera ráðuneytinu aðvart, ef hún telur hættu á, að veiðarnar gangi of nærri stofnum nytjafiska eða spilli á einhvern hátt framtíð íslenskra fiskveiða. Við lestur þeirra umr., sem urðu á hv. Alþingi, þegar frv. að l. nr. 40 frá 1960 var þar til meðferðar, má mjög glöggt sjá, að lesnir af meðhaldsmönnum málsins undirstrikuðu dyggilega, að fylgi þeirra við málið byggðist ekki hvað sízt á því, að þetta vísindalega eftirlit mundi gera mögulegt að vara við hættu af afveiði í tíma og stöðva mætti þá þessar veiðar fyrirvaralítið, ef þörf sýndist á því. Til slíks hefur ekki komið hingað til, og bendir það út af fyrir sig til þess, að fiskifræðingar okkar telji hér enga eða ekki mjög umtalsverða hættu á ferðum. Hins vegar er það staðreynd, að margir og þá ekki sízt ýmsir starfandi sjómenn hafa aðra sögu að segja, og með allri virðingu fyrir okkar áætu fiskifræðingum finnst mér ekki hægt að skella skollaeyrum við staðhæfingum þessara reyndu manna, sem hafa margir hverjir stundað fiskveiðar í Faxaflóa um áratugaskeið.
Þessi fyrirspurn er borin fram til þess að leiða staðreyndir málsins fram í dagsljósið, svo að ekki þurfi að fella sleggjudóma um, að stórkostleg hætta sé á eyðingu fiskistofna í Faxaflóa af völdum dragnótaveiði, ef slíkt á sér enga stoð í veruleikanum að dómi fiskifræðinganna.