08.04.1963
Neðri deild: 67. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 754 í B-deild Alþingistíðinda. (621)

172. mál, byggingasjóður aldraðs fólks

Frsm. (Birgir Finnsson):

Hæstv. forseti. Heilbr.- og félmn. flytur á þskj. 525 litla brtt. við þetta frv. Það er lagt til, að orðin „styrkir og” í upphafi 8. gr. falli niður. Þessi breyting er eingöngu flutt til samræmis við þær breytingar, sem gerðar voru á frv. við 2. umr., en þá var, eins og þdm. munu minnast, ákveðið að fella niður úr frv. þau ákvæði, sem miðuðust við, að byggingasjóðurinn veitti styrki, og eingöngu gert ráð fyrir, að hann veiti lán. Af einhverjum ástæðum hefur okkur yfirsézt að breyta þessu í 8. gr. frv., og þess vegna er þessi brtt. fram borin.