04.04.1963
Efri deild: 67. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í B-deild Alþingistíðinda. (835)

219. mál, framboð og kjör forseta Íslands

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Um rök fyrir frv. því, sem hér er til umr., frv. um framboð og kjör forseta Íslands, leyfi ég mér að vísa til þeirrar örstutta grg., sem frv. fylgir og ég veit, að allir hv. þdm. hafa rennt augum yfir. Við það er engu að bæta.

Ég leyfi mér, herra forseti, að mælast til þess, að þessu frv, verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.