16.04.1963
Neðri deild: 71. fundur, 83. löggjafarþing.
Sjá dálk 1021 í B-deild Alþingistíðinda. (981)

196. mál, almannatryggingar

Forseti (JóhH):

Út af þessu verður þessum fundi frestað núna, en haldið áfram klukkan fimm, og ég geri einnig ráð fyrir því að halda þá fleiri fundi til þess að koma áfram afgreiðslu mála, þegar dagskrá þess fundar er lokið. En með hliðsjón af því, að nú er kominn tími til venjulegs síðdegishlés, mun ég fresta fundinum þangað til kl. fimm — [Fundarhlé.]